8. okt. 2021

Gunnar Ingi Hákonarson skrifar undir uppeldissamning við Hörð

Gunnar Ingi Hákonarson, fæddur 2006, er yngsti leikmaðurinn sem hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Harðar.

Gunnar Ingi Hákonarson skrifaði á dögunum undir uppeldissamning við Hörð. Hann er fæddur 2006 og varð 15 ára á dögunum. Með undirrituninni varð hann yngsti leikmaðurinn til að skrifa undir samning við handknattleiksdeild Harðar.

Carlos valdi Gunnar í hópinn fyrir leik kvöldsins, svo hann fær að kynnast því að vera í kringum liðið á leikdegi. Handknattleiksdeildin óskar Gunnari til hamingju.