26. apr. 2013
5. flokkur lauk keppni vetrarins á móti FH í Kaplakrika
5. flokkur Harðar lauk keppni vetrarins á móti FH-inga í Kaplakrika í gær og vann engan leik að þessu sinni.
5. flokkur Harðar lauk keppni vetrarins á móti FH-inga í Kaplakrika í gær. Piltarnir unnu engan sigur að þessu sinni, en félagið leggur mikið upp úr stemmningu og liðsanda og því hvernig liðin mæta til leiks.
Leikurinn gegn Fylki var jafn og spennandi allan tímann en aðrir leikir voru erfiðari. Ísak markmaður átti frábært mót, varði af krafti í öllum leikjunum og skoraði úr eina vítakasti liðsins á mótinu. Venjulega sækir liðið mörg víti í hverri túrneringu.
Leikmenn 5. flokks kveðja þar með túrneringafyrirkomulagið og keppa á Íslandsmóti 4. flokks næsta vetur, þar sem leikið er heima og heiman gegn hverju liði deildarinnar.