6. okt. 2021

Fyrsti heimaleikur tímabilsins gegn Selfoss U á föstudag

Hörður tekur á móti Selfoss U í fyrsta heimaleik tímabilsins á föstudaginn klukkan 19:30 á Torfnesi.

Fyrsti heimaleikur Harðar á þessu tímabili fer fram á föstudaginn. Þá mætir liðið Selfoss U á Torfnesi og hefst leikurinn klukkan 19:30.

Félagið hvetur stuðningsfólk til að fjölmenna í húsið og styðja strákana til sigurs.