14. apr. 2013
4. flokkur tapaði 24-13 fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum
Tímabili 4. flokks Harðar lauk með 24-13 tapi gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, en staðan í hálfleik var 11-7.
Tímabili 4. flokks Harðar lauk fyrr í dag með 24-13 tapi gegn ÍBV. Staðan í hálfleik var 11-7. Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum og var ÍBV mjög sterkt lið.
Piltarnir geta borið höfuðið hátt þótt hlutirnir hafi ekki fallið með þeim í leiknum. Gott keppnistímabil er nú að baki hjá báðum liðum 4. flokks.
Framundan er skipulagning og undirbúningur næsta tímabils, sem hefst strax á næstu dögum og vikum.