24. mars 2013
2. flokkur tapaði 17-25 fyrir Vestmannaeyingum í lokaleik tímabilsins
Lokaleikur helgarinnar og tímabilsins hjá 2. flokki endaði með 17-25 sigri gestanna frá Vestmannaeyjum, en staðan í hálfleik var 11-11.
Lokaleikur helgarinnar og tímabilsins hjá 2. flokki endaði með 17-25 sigri gestanna frá Vestmannaeyjum. Staðan í hálfleik var 11-11 og strákarnir voru því enn í leiknum þegar þar var komið við sögu. Leikurinn var jafn framan af en gestirnir náðu svo að klára dæmið.
Félagið þakkar þeim sem mættu á pallana um helgina og studdu strákana.
Framundan er snarpt páskafrí næstu vikuna eða svo og síðan taka við æfingar á fullu fram á vor. 4. flokkur fer í úrslitakeppnina og 5. og 6. flokkur eiga eftir eina túrneringu í apríl.