23. mars 2013
Hörður tapaði tveimur leikjum gegn ÍBV – lokaleikur 2. flokks á morgun
Hörður tapaði tveimur leikjum gegn ÍBV í dag, 27-36 og 23-42, og lokaleikur 2. flokks á tímabilinu er á morgun, sunnudag kl. 11:30 á Torfnesi.
Hörður lék tvo erfiða leiki gegn ÍBV í dag. Fyrri leiknum lauk með 27-36 sigri gestanna, en staðan í hálfleik var 14-17. Okkar menn voru vel inni í leiknum fyrstu 30 mínúturnar.
Síðari leikurinn hófst skömmu eftir að þeim fyrri lauk. Honum lauk með 19 marka sigri gestanna, 23-42, og var staðan í hálfleik 15-21.
Lokaleikur 2. flokks á þessu tímabili er á morgun, sunnudag kl. 11:30, og er það lokaleikur Íslandsmótsins þetta tímabilið. Leikið er á Torfnesi og er frítt inn. Allir eru hvattir til að mæta og styðja liðið.