24. nóv. 2012
Hörður þakkar stuðninginn á leikjunum í kvöld
Handknattleiksdeild Harðar þakkar þeim fjölmörgu sem mættu í kvöld fyrir komuna og stuðninginn, þótt báðir leikirnir hafi tapast.

Handknattleiksdeild Harðar þakkar þeim fjölmörgu sem mættu í kvöld fyrir komuna og stuðninginn. Það var gaman að sjá stemmninguna sem myndaðist á pöllunum.
Báðir leikirnir töpuðust, en kvöldið var engu að síður skemmtilegt, sérstaklega bikarævintýrið, sem verður bara lengra að ári.
Hrafn Snorrason tók nokkrar frábærar myndir í bikarleiknum.






