12. ágú. 2021

Hörður tekur þátt í Opna Norðlenska mótinu um helgina

Karlalið Harðar fer norður um helgina og keppir á Opna Norðlenska mótinu, þar sem KA, KA-U, Hörður og Fram taka þátt.

Um helgina fara strákarnir norður um heiðar og keppa á Opna Norðlenska mótinu. Þau lið sem taka þátt eru KA, KA-U, Hörður og Fram.

Hörður á tvo leiki á mótinu. Fyrst leikur liðið við KA á föstudag kl. 18:00 og síðan við KA U á laugardag kl. 13:30.

KA-TV mun sýna frá öllum leikjum mótsins, þannig að hægt verður að sjá báða leiki Harðar.