15. mars 2013

Fyrsti handboltadagur Harðar af þremur liðinn

Hörður1 vann Hörð2 45-16 í innbyrðisleik og 2. flokkur tapaði 31-45 fyrir HK; næstu leikir eru á laugardag.

Fyrsti dagur af þremur handboltadögum Harðar um helgina er liðinn. Fyrri leikur dagsins var innbyrðisleikur Harðar1 og Harðar2 og endaði hann 45-16 fyrir lið 1.

2. flokkur Harðar lék svo gegn afar sterku liði HK úr Kópavogi. Staðan í hálfleik var 19-24 og leikurinn endaði 31-45 fyrir gestina. Góðir taktar sáust á parketinu og gaman var að sjá gamla liðsfélaga mætta aftur í Harðarbúninginn.

Næstu leikir eru á morgun, laugardag. Fyrst er það Hörður-HK í 2. flokki kl. 12:00 og síðan Hörður2-KR í 4. flokki kl. 14:30. Frítt er inn á leikina.