10. mars 2013

Keppnishelgi 2. og 4. flokks lokið – Hörður 1 deildarmeistari

2. flokkur tapaði tveimur leikjum naumlega en Hörður 1 í 4. flokki tryggði sér deildarmeistaratitil með 31-19 sigri á Fjölni 2.

Keppnishelgi elstu flokka Harðar, 2. flokks og 4. flokks, er lokið. Eftir fimm leiki fór hópurinn á bikarúrslitaleik í meistaraflokki karla á milli ÍR og Stjörnunnar áður en haldið var vestur.

2. flokkur lék tvo leiki og tapaði báðum naumlega. Fyrri leikurinn endaði 23-20 fyrir Víkingi og sá síðari 30-29 fyrir Þrótti. Framundan eru síðustu 5 leikir tímabilsins, gegn HK og ÍBV.

4. flokkur lék þrjá leiki. Hörður 1 vann Fjölni 2 með 12 marka mun, 31-19, og tryggði sér þannig deildarmeistaratitilinn og sæti í úrslitakeppni átta bestu liða landsins. Liðið hefur unnið alla 10 leiki sína, á tvo leiki eftir af deildarkeppninni og er með 120 mörk í plús. Hörður 2 tapaði 25-17 fyrir KR í Vesturbænum en vann síðan HKR í Keflavík, 28-26, eftir 50 mínútna leik. Liðið var án markmanns í leiknum.