3. mars 2013
5. flokkur Harðar gaf lokaleikinn vegna veðurs
5. flokkur Harðar gaf lokaleik mótsins gegn Aftureldingu vegna vonskuveðurs eftir 12-9 tap gegn ÍR-ingum snemma í morgun.
Vegna vonskuveðurs þurfti 5. flokkur Harðar að gefa lokaleik mótsins gegn Aftureldingu. Fyrr um morguninn tapaði liðið 12-9 gegn ÍR-ingum.
Ákveðið var að keppa ekki síðasta leikinn, sem átti að hefjast um hádegið, til að sleppa við óveðrið. Sú ákvörðun var tekin af fararstjórum hópsins í samráði við foreldra piltanna og var talin rétt.
Drengirnir voru að koma í Skutulsfjörð og eru allir staðráðnir í að gera vel á lokamóti vetrarins í lok apríl.