21. júlí 2021

Harðverjar kveðja Kríu með söknuði

Hörður kveður Kríu Handbolta með söknuði og vonast til að liðið mæti ferskt í Grill66 deildina og komi aftur á Ísafjörð í vetur.

Harðverjar kveðja Kríu og þeirra góðu menn úr handboltanum með söknuði. Kría Handbolti var skemmtileg viðbót við deildina.

Kría ætlar ekki að taka sæti í efstu deild. Harðverjar vona engu að síður að liðið mæti ferskt í Grill66 deildina og komi á Ísafjörð aftur í vetur.

Ef handboltadeild Kríu leggst í dvala eru stuðningsmenn hennar boðnir velkomnir í fóstur hjá Herði á meðan.