21. júlí 2021

Carlos Martin Santos framlengir samning sinn við Hörð til þriggja ára

Carlos Martin Santos hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Hörð til 3 ára.

Carlos Martin Santos hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Hörð til 3 ára. Félagið vonast til þess að haldið verði áfram á þeirri braut sem hann hefur verið með félagið á undanfarin ár.

Carlos kom til Harðar frá Benidorm á Spáni þar sem hann var aðstoðarþjálfari. Hann er með meistaragráðu í handboltaþjálfun frá Barcelona og hefur að sögn félagsins sýnt undanfarin tvö ár að hann er á meðal efnilegustu þjálfara sem fyrirfinnast.

Carlos ætlar að vaxa og dafna með Herði á næstu árum, og markmið hans og félagsins er afar skýrt. Í færslu félagsins segir einnig á spænsku: Eres un local ahora, Carlos.