21. júlí 2021

Óli Björn Vilhjálmsson framlengir samning sinn við Hörð til fimm ára

Fyrirliðinn Óli Björn Vilhjálmsson hefur framlengt samningi sínum við Hörð til fimm ára.

Óli Björn Vilhjálmsson, fyrirliði Harðar, hefur framlengt samningi sínum við félagið til fimm ára. Í færslu félagsins er hann kallaður fyrirliðinn, framtíðarmaðurinn og toppmaðurinn.

Samkvæmt félaginu hefur Óli Björn tekið stórstígum framförum á síðustu árum. Hann var á meðal bestu manna Grill66 deildarinnar í fyrra, þriðji markahæsti maður Harðar og á meðal 20 markahæstu manna deildarinnar.

Óli Björn er sagður mikilvæg stoð í leikmannahópnum, bæði innan og utan vallar, og mikilvægt fyrir unga leikmenn Harðar að geta leitað til hans. Fyrri lið hans eru Grótta og KR, en í huga félagsins er hann heimamaður og Harðverji.