18. feb. 2013

4. flokkur Harðar: sigur hjá Herði 1 gegn KR, tap hjá Herði 2

Hörður 1 vann KR 27-23 en Hörður 2 tapaði 34-13 fyrir Aftureldingu í Mosfellsbænum um helgina.

4. flokkur Harðar er á leið heim eftir langa og stranga helgi. Hörður 1 vann KR 27-23 í morgun. Liðið er enn efst í deildinni og hefur ekki tapað einu einasta stigi.

Hörður 2 átti erfiðan leik gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum, þar sem leikurinn endaði 34-13 heimamönnum í vil. Í færslu flokksins segir að leikmenn haldi áfram að læra og bæta sig.

Næstu leikir flokksins fara fram 8.-10. mars.