17. feb. 2013

4. flokkur Harðar: sigur og jafntefli á fyrri keppnisdegi helgarinnar

Hörður 1 vann HKR 17-28 í Keflavík og Hörður 2 gerði 18-18 jafntefli við HK 2 í Kópavogi á fyrri keppnisdegi helgarinnar hjá 4. flokki.

Fyrri keppnisdegi helgarinnar hjá 4. flokki lauk í dag. Um morguninn keppti Hörður 1 gegn HKR í Keflavík og vann ellefu marka sigur, 17-28, en staðan í hálfleik var 8-13. Í Kópavoginum tók HK 2 á móti Herði 2 og endaði leikurinn með 18-18 jafntefli eftir æsispennandi lokamínútur. Staðan í hálfleik var 9-8.

Í lok dags fór hópurinn á Die Hard og síðan á pizzahlaðborð, þar sem hópurinn horfði á Gunnar Nelson vinna sigur í UFC.

Á morgun mætir Hörður 1 liði KR í Vesturbænum og Hörður 2 leikur gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum. Að þeim leikjum loknum er haldið aftur í Skutulsfjörðinn.