23. maí 2021
Hörður vann Víking með eins marks mun
Hörður vann Víking með einu marki í kvöld og staðan í einvíginu er 1-1. Næsti leikur er fyrirhugaður á þriðjudagskvöldið næsta.
Harðarmenn unnu Víking með einu marki í kvöld. Víkingar komu í heimsókn með Jón Gunnlaug Viggósson, vin Harðverja, sem þjálfara. Hann hefur í gegnum tíðina útvegað Herði æfingapláss í Reykjavík og ávallt sýnt félaginu hlýhug.
Stefán Freyr kom inn á undir lokin og varði þegar á reyndi. Endjis og Raivis skoruðu báðir 10 mörk, en Endjis hafði fengið leyfi til að spila á ný. Staðan í einvíginu við Víking er 1-1 og næsti leikur er fyrirhugaður á þriðjudagskvöldið næsta.
Knattspyrnulið Harðar náði jafntefli í gær og stóð sig með sóma. Ásgeir Óli Kristjánsson, einn af traustustu Harðverjum, útskrifaðist í gær frá MÍ og fær hamingjuóskir.