20. jan. 2013

Frakkar unnu 18-20 á spilæfingu 5. og 6. flokks

5. og 6. flokkur léku Ísland-Frakkland á sameiginlegri spilæfingu og endaði leikurinn með 18-20 sigri Frakka.

5. og 6. flokkur skáru úr um það á sameiginlegri spilæfingu fyrr í dag hvernig leikur Íslands og Frakklands færi. Úr varð 18-20 sigur Frakka, sem var sagður sannfærandi og í raun aldrei í hættu.

Vonast er til þess að það fari betur hjá strákunum okkar í dag. Áfram Ísland!