25. apr. 2021
Rolands skrifar undir nýjan þriggja ára samning við Hörð
Markmaðurinn Rolands hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning og verður áfram á Ísafirði næstu árin.

Rolands hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við Hörð. Hann kom til félagsins á miðju síðasta tímabili og hefur ákveðið að dvelja á Ísafirði næstu árin.
Markmaðurinn öflugi hefur leikið vel á tímabilinu og hefur lokað rammanum á tímabili í vetur.
Það er ánægjulegt að Rolands hafi ákveðið að framlengja samning sinn við félagið og fagna Harðverjar því.