20. apr. 2021

Guntis Pilpuks skrifar undir nýjan þriggja ára samning við Hörð

Örvhenta skyttan Guntis Pilpuks, 20 ára, hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við Hörð eftir að hafa skorað 70 mörk í 12 leikjum í vetur.

Örvhenta skyttan Guntis Pilpuks hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við Hörð. Hann er 20 ára gamall.

Guntis hefur spilað lykilhlutverk hjá Herði í vetur og skorað 70 mörk í 12 leikjum.

Það verður gaman að fylgjast með þessum efnilega leikmanni næstu árin hjá Herði, þar sem hann tekur þátt í uppbyggingunni sem hefur verið í gangi síðustu ár.