19. apr. 2021

Raivis Gorbunovs framlengir við Hörð til þriggja ára

Raivis Gorbunovs hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Harðar.

Raivis Gorbunovs hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Harðar. Raivis var nýverið valinn í lettneska landsliðið og hefur verið lykilmaður hjá Herði á tímabilinu.

Raivis er 22 ára miðjumaður og markahæsti leikmaður liðsins með 93 mörk í 12 leikjum. Hann gegnir einnig stóru hlutverki í varnarleik liðsins.

Harðverjar lýsa yfir mikilli ánægju með að Raivis hafi ákveðið að framlengja samning sinn við félagið.