16. mars 2021
6. flokkur karla vann sig upp í efstu deild
6. flokkur karla hjá Herði vann aðra deildina um helgina og spilar því meðal fimm bestu liða næst þegar liðin koma saman.

6. flokkur karla hjá Herði vann aðra deildina um helgina og vann sér þar með sæti í efstu deild. Strákarnir spila því meðal fimm bestu liða næst þegar þeir koma saman. Í færslu félagsins segir að drengirnir hafi sýnt að þeir geti keppt við þá bestu.
7. flokkur karla keppti einnig um helgina og sýndi flotta tilburði. Á milli leikja var ratleikur og mikil skemmtun.
Þjálfari beggja hópa er Carlos Martin Santos og honum til aðstoðar er Ásgeir Óli Kristjánsson. Félagið leitar jafnframt að fyrirtækjum sem vilja setja merki sín á búninga drengjanna og geta áhugasamir haft samband við félagið á síðu þess.






