14. des. 2012
Fram vann Hörð 20-37 í Torfnesi
Framarar unnu sanngjarnan sigur á Herði í Torfnesi, 20-37, en staðan í hálfleik var 8-16.
Framarar reyndust Herði erfiðir og unnu gestirnir sanngjarnan sigur, 20-37. Staðan í hálfleik var 8-16. Harðverjar börðust vel um miðbik fyrri hálfleiks og var munurinn lengi vel ekki meiri en 3-4 mörk. Slæmur 2-3 mínútna kafli undir lok fyrri hálfleiks breytti stöðunni úr 7-11 í 8-16 og eftir það varð róðurinn afar erfiður.
Heimamenn gáfu allt sitt í leikinn en það dugði ekki til. Hörður óskar Fram til hamingju með sigurinn og góðs gengis í keppninni í framhaldinu. Félagið þakkar öllum þeim sem mættu í Torfnes til að styðja liðið. Bikarkeppnin var alltaf bónus tímabilsins og áfram verður stefnt að því að standa sig vel á Íslandsmótinu. Annað lið Harðar í 4. flokki leiðir sína deild og er enn ósigrað.
Keppnisdagskrá handknattleiksdeildar Harðar er þar með lokið á árinu 2012. Liðið mætir ferskt til leiks á nýju ári og sendir stuðningsfólki sínu jólakveðju.