12. des. 2012

Liðin fyrir jólamótið á morgun liggja fyrir

Búið er að raða í átta lið fyrir jólamótið á morgun og hvert lið á að mæta í sínum lit, en leiknar verða 7 umferðir.

Uppröðun liða fyrir jólamótið á morgun er klár. Liðin eiga helst að mæta í sínum litum, í bol eða peysu. Ef ekkert finnst heima verða vestir útvegaðir.

Liðin og litirnir eru þessi. Flensburg (grænn): Ívar Atli 2.fl, Hjalti og Patrekur 4.fl., Ísak 5.fl. og Jakob 6.fl. RN Löwen (rauður): Jóhann Mar 2.fl, Lena og Pétur 4.fl, Birkir og Steini 5.fl, Þráinn 6.fl. Kiel (hvítur): Jóhann Gunnar 2.fl, Gísli og Aðalsteinn 4.fl, Hreinn 5.fl, Þórður og Helgi 6.fl. Fuchse Berlin (gulur): Finnbogi 2.fl, Daníel, Friðrik og Vilmar 4.fl, Andri 5.fl og Kristófer 6.fl. Hörður (blár): Hákon Elí 2.fl, Jens og Eggert 4.fl, Hákon 5.fl, Ívar Bjarki og Ívar 6.fl. GOG (svartur): Alex Rafn 2.fl, Baldur og Jakob 4.fl, Jón Ómar og Björn Dagur 5.fl, Gummi 6.fl. Hamburg (grár): Óli Njáll+Hjálmar 2.fl, Dagur og Sigþór 4.fl, Elías Ari 5.fl, Ásgeir og Ásthildur 6.fl. A. Madrid (brúnn): Axel 2.fl, Arnór og Hilmar 4.fl, Kjartan og Bjarni 5.fl, Davíð 6.fl.

Leiknar verða 7 umferðir þar sem allir leika við alla. Fjórir leikmenn eru inni á vellinum í einu og elstu leikmenn stjórna frjálsum skiptingum í hverjum leik. Hver leikur stendur yfir í 6 mínútur.