26. feb. 2021

Leikdagur hjá Herði: tæplega 100 áhorfendur leyfðir í kvöld

Rétt tæplega 100 áhorfendur eru leyfðir á leik Harðar í kvöld og þarf að skrá fólk inn, en leikurinn verður í beinni útsendingu hjá Viðburðastofu Vestfjarða.

Leikdagur er hjá Herði í dag. Rétt tæplega 100 áhorfendur eru leyfðir á leikinn í kvöld.

Til að fylgja öllum reglum þarf að skrá fólk inn og því er mikilvægt að fólk mæti nokkru áður en leikurinn hefst.

Þeir sem ekki komast á leikinn geta fylgst með honum í beinni útsendingu hjá Viðburðastofu Vestfjarða.