22. feb. 2021
Hörður svarar yfirlýsingu Vængja Júpíters vegna leiks í Dalhúsum
Hörður sendi 22. febrúar 2021 frá sér yfirlýsingu vegna leiksins gegn Vængjum Júpíters í Dalhúsum, sem fór 29-35, og vegna leikskýrslunnar.

Vængir Júpíters og Hörður áttust við í handboltaleik á laugardaginn í Dalhúsum. Leiknum lauk með sigri Harðar, 29-35, og var Hörður á tímabili 10 mörkum yfir. Hörður sendi frá sér yfirlýsingu 22. febrúar 2021 vegna tilkynningar sem Vængir Júpíters höfðu sent frá sér sama dag.
Að sögn Harðar var listi með númerum leikmanna sendur ritara leiksins klukkustund fyrir leik og þar var umræddur leikmaður nefndur. Hann er ekki á endanlegri skýrslu og telur Hörður að sökin sé beggja. Ritari hafi breytt skýrslunni, að eigin sögn til að laga númeraröð, en forráðamenn Harðar hafi ekki skoðað útprentunina nægilega vel. Hörður segir leikmanninn löglegan, tvítugan og með leikmannasamning við félagið, og að hann sé hvorki í leikbanni né annað.
Hörður segir að forráðamenn félagsins hafi lagt til að félagið legði fram upphæð til Pieta samtakanna, en ekki hafi verið áhugi á þeirri hugmynd. Félagið telur að úrslit eigi að ráðast á gólfinu og vonast til þess að mótanefnd HSÍ beiti meðalhófi og refsi hvorugu félaginu. Telji Vængir og mótanefnd brotið hafa haft áhrif á úrslitin er Hörður tilbúinn að spila leikinn aftur strax í kvöld eða á morgun. Félagið biður alla hlutaðeigandi að leysa málið með hagsmuni handboltans í huga.