17. nóv. 2012
4. flokkur lék tvo leiki fyrir sunnan, leikjum 2. flokks frestað
Hörður2 tapaði 25-15 fyrir Fjölni2 en Hörður1 vann HK2 37-17 í 4. flokki, og leikjum 2. flokks hefur verið frestað til 7. desember.
Leikjum 2. flokks hefur verið frestað til 7. desember næstkomandi.
4. flokkur lék tvo leiki fyrir sunnan í dag. Hörður2 tapaði erfiðum leik gegn Fjölni2, 25-15, en staðan í hálfleik var 13-8. Hörður1 vann 20 marka sigur á HK2, 37-17, en staðan í hálfleik var 14-8.
Dagskrá kvöldsins er að fara út að borða og svo í bíó í Smáralind. Lokaleikur helgarinnar er hjá Herði1 í fyrramálið gegn Aftureldingu, áður en haldið verður heim á leið.