12. nóv. 2012
2. og 5. flokkur Harðar léku á Íslandsmótinu fyrir sunnan
Leikmenn 2. flokks og 5. flokks Harðar fóru suður um helgina til að leika á Íslandsmótinu í handbolta og komu heim eftir góða helgi í Reykjavík.
Leikmenn 2. flokks og 5. flokks Harðar fóru suður um helgina til að leika á Íslandsmótinu í handbolta. 2. flokkur lék tvo erfiða leiki, gegn Þrótturum og Víkingum. Síðari leikurinn var í járnum fyrstu 30 mínúturnar en í seinni hálfleik misstu menn þetta niður.
Í 5. flokki voru strákarnir ekki líkir sjálfum sér þessa helgina og voru fullrólegir í leikjum sínum. Allir komust þó sprækir og hressir heim eftir góða helgi í Reykjavík.