8. jan. 2021
Stefán Freyr og Sudario valdir í æfingahóp U-17 ára landsliðsins
HSÍ hefur sent út æfingahópa yngri landsliða og þeir Stefán Freyr Jónsson og Sudario Carneiro hafa verið valdir til æfinga með U-17 ára liðinu.

Handknattleikssamband Íslands sendi nýlega út þá hópa sem landsliðsþjálfarar yngri landsliðanna hafa valið.
Stefán Freyr Jónsson og Sudario Carneiro hafa verið valdir til æfinga með U-17 ára liðinu. Handknattleiksdeild Harðar óskar þeim til hamingju og velfarnaðar.