25. sep. 2020

Hörður mætir Kríu í Hertz höllinni í kvöld klukkan 20:30

Hörður keppir í dag við Kríu í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi og hefst leikurinn klukkan 20:30.

Karlalið Harðar heldur suður fyrir heiðar í dag og keppir við Kríu í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi. Leikurinn hefst klukkan 20:30.

Félagið hvetur alla stuðningsmenn Harðar fyrir sunnan til að fjölmenna á leikinn og styðja strákana. Kría er með flott lið og er spáð 3. sætinu í deildinni í ár af sérfræðingunum.