2. sep. 2020
Handknattleiksdeild Harðar á Instagram
Handknattleiksdeild Harðar á Ísafirði býður gesti velkomna á Instagramsíðu sína, þar sem verða birtar upplýsingar um leiki, leikmannakynningar, myndir og myndbönd.
Á síðunni verður sagt frá því hvenær næsti leikur er. Einnig verða þar leikmannakynningar og fleiri skemmtilegar myndir og myndbönd.
Deildin vonast til að sjá sem flesta á fyrsta leik sínum í Grill 66 deildinni í september, ef Þórólfur leyfir. Færslunni lýkur á orðunum: Ein heild, eitt lið, HÖRÐUR!