12. júlí 2012

Tap í fyrsta leik milliriðils, 9 gegn 13

Hörður tapaði fyrsta leik milliriðilsins 9 gegn 13 og mætir sterku þýsku liði klukkan 12:40 innanhúss í dag.

Fyrsta leik milliriðils er lokið og endaði hann með tapi, 9 gegn 13, gegn liðinu sem Hörður gerði jafntefli við í riðlinum. Leikurinn var klukkan 08.35 á blautum og brúnum grasvelli, sem var jafn blautur og brúnn fyrir bæði liðin. Strákarnir voru ekki klárir í slaginn og staðan í hálfleik var 1 gegn 6 Herði í óhag.

Hugur er í drengjunum og þeir mæta gífurlega sterku þýsku liði klukkan 12:40 innanhúss í dag. Hörður er kominn í topp 8. Liðið stendur saman sem ein heild.