11. júlí 2012
Hörður vann báða leiki dagsins og komst í A keppnina
Hörður vann fyrsta grasleik mótsins 12:7 og úrslitaleik riðilsins 24:14 og leikur því í A keppninni, keppni átta bestu liða mótsins.
Fyrsti leikur Harðar á grasi fór fram eftir hádegi og vannst örugglega, 12:7. Liðið var undir í hálfleik en spilaði mun betur í seinni hálfleik. Völlurinn var mjög blautur og erfiður, og það voru mikil viðbrigði að spila handbolta við slíkar aðstæður.
Seinni leikur dagsins var jafnframt síðasti leikur riðilsins og úrslitaleikur um hvort liðið færi í A eða B keppnina. Leikið var í aðalsalnum fyrir fullu húsi áhorfenda. Hörður vann 24:14, tíu marka sigur, og tryggði sér sæti í A keppninni, keppni átta bestu liða mótsins.
Milliriðill Harðar hefst kl. 08:35 á morgun á grasi og kl. 12:40 á morgun í aðalsalnum. Þriðji leikurinn er í aðalsalnum daginn þar á eftir kl. 10:20. Tvö efstu liðin fara í undanúrslit sem verða á föstudagskvöld. Allir í hópnum eru ferskir.