4. júlí 2012

3. flokkur Harðar undirbýr mót í Dronninglund í Danmörku

3. flokkur Harðar í handbolta undirbýr sig fyrir mót í Dronninglund, nálægt Álaborg, og heldur út næstkomandi laugardagskvöld.

3. flokkur Harðar í handbolta er á fullu þessa dagana að undirbúa sig fyrir skemmtilegt mót í Danmörku. Mótið fer fram í smábænum Dronninglund, nálægt Álaborg, nyrst á Jótlandi.

Hópurinn heldur út næstkomandi laugardagskvöld ásamt fararstjóra og þjálfara. Fregnir af drengjunum munu birtast á FB-síðu hkd Harðar.