8. júlí 2020

6. flokkur karla varð 2. deildarmeistari á sumarmóti HSÍ

Strákarnir í 6. flokki karla unnu alla andstæðinga sína í 2. deild á sumarmóti HSÍ um miðjan júní og enda tímabilið í 1. deild.

Strákarnir í 6. flokki karla kepptu á sumarmóti HSÍ um miðjan júní. Þeir kláruðu alla andstæðinga sína í 2. deild karla, urðu þar með 2. deildarmeistarar og enda tímabilið í 1. deild karla. Harðverjar eru afar stoltir af hópnum, en strákarnir hafa á undanförnum árum hvað eftir annað náð eftirtektarverðum árangri.

Ferðin var einstaklega góð. Hitað var upp í útilasertag fyrir leikina, haldið var pizzupartí og daginn eftir leikina var farið í ævintýraferð með Tröll Expeditions, meðal annars í hellinn Leiðarenda. Nokkrar myndir úr ferðinni fylgja fréttinni.

Þetta var fyrsti bikar Carlosar Martins Santos, þjálfara Harðar, hér á landi, vonandi af mörgum.