15. jan. 2014

Frítt á handboltaæfingar hjá Herði á næstunni

Hörður hvetur alla til að mæta frítt á æfingar á næstunni og styður handboltaátak HSÍ; æfingatímar eru fyrir 5.-10. bekk og menntaskólaaldur.

Hörður hvetur alla til að mæta frítt á æfingar félagsins á næstunni og styður heilshugar handboltaátak HSÍ. Allir eru hvattir til að mæta í handbolta á Ísafirði og í Bolungarvík.

Krakkar í 5.-7. bekk æfa í Torfnesi, nema á laugardögum. Æfingar eru á miðvikudögum kl. 17:20-18:20, föstudögum kl. 15:00-16:00, laugardögum kl. 10:00-11:00 (Bolungarvík) og sunnudögum kl. 12:00-13:00.

Krakkar í 8.-10. bekk æfa í Torfnesi, nema á laugardögum. Æfingar eru á mánudögum kl. 16:25:17:20, miðvikudögum kl. 18:20-20:00, föstudögum kl. 16:00-17:20, laugardögum kl. 10:00-11:00 (Bolungarvík) og sunnudögum kl. 13:00-14:00. Á menntaskólaaldri eru allar æfingar í Torfnesi: mánudaga kl. 18:40-20:20, þriðjudaga kl. 19:40-21:00, miðvikudaga kl. 18:20-20:00, föstudaga kl. 16:00-17:20 og sunnudaga kl. 13:00-14:00.