25. maí 2020

Hörður þiggur boð HSÍ um sæti í 1. deild karla

Handknattleiksdeild Harðar hefur þegið boð HSÍ um að spila í 1. deild karla í meistaraflokki á næsta ári.

Handknattleiksdeild Harðar hefur þegið boð HSÍ um að spila í 1. deild karla í meistaraflokki á næsta ári. Á næstu dögum verður farið yfir þá leikmenn sem hafa endurnýjað samninga sína við liðið.

Fyrirséð er að tveir leikmenn fara suður í skóla, en vonir félagsins standa til þess að að minnsta kosti 3-4 leikmenn bætist við í sumar.

Félagið hvetur sérstaklega íslenska leikmenn til að koma til Ísafjarðar, einkum þá sem eru á menntaskólaaldri. Félagið mun aðstoða þá við að koma sér fyrir og í liðinu er flottur hópur ungra manna. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda félaginu skilaboð.