29. maí 2012
Lokahóf Harðar haldið utandyra í Torfnesi
Handknattleiksdeild Harðar hélt lokahóf í Torfnesi með verðlaunaafhendingu og grillveislu fyrir iðkendur og foreldra.

Lokahófi Harðar er lokið. Nýtt var veðurblíða í Skutulsfirði og var hófið haldið utandyra í Torfnesi, þar sem boðið var upp á bæði verðlaunaafhendingu og grillveislu fyrir iðkendur og foreldra. Allir iðkendur Harðar fengu mjúkbolta að gjöf frá N1.
Handknattleiksmaður Harðar var valinn Sigurður Óli Rúnarsson og Harðverji ársins Elías Ari Guðjónsson. Í yngstu flokkunum voru veitt verðlaun fyrir ástundun og framfarir. Í 6. flokki fengu verðlaun Andri Fannar Sóleyjarson fyrir ástundun og Ísak Andri Maronsson fyrir framfarir. Í 5. flokki fengu Eggert Karvel Haraldsson verðlaun fyrir ástundun og Jakob Jóhann Veigarsson fyrir framfarir. Í 3. flokki fengu Halldór Ingvi Haraldsson verðlaun fyrir ástundun og Alex Rafn Elfarsson fyrir framfarir.
Í 2. flokki fékk Hákon Elí Ólafsson verðlaun fyrir ástundun og framfarir og Ólafur Njáll Jakobsson var valinn efnilegasti leikmaðurinn. Á meðfylgjandi mynd má sjá Elías Ara í áritaðri Íslandsmeistaratreyju HK, sem hann fékk fyrir nafnbótina Harðverji ársins.