6. apr. 2020

Handknattleikstímabilinu lokið hjá Herði

Handknattleikstímabilinu er lokið, bæði hjá yngri flokkum og meistaraflokki, og Harðverjar segjast koma sterkir til baka á næsta tímabili.

Handknattleiksdeild Harðar greinir frá því að handknattleikstímabilinu sé lokið. Það á jafnt við um yngri flokka og meistaraflokk. Deildin þakkar HSÍ - Handknattleikssambandi Íslands fyrir að hafa beðið svo lengi í von um að þetta lagaðist.

Harðverjar segjast koma sterkir til baka á næsta tímabili. Þangað til hugsa þeir hlýtt til Harðverja í samfélaginu á þessum erfiðu tímum.

Þeim Harðverjum sem eru að fá þessa óværu eru sendar baráttukveðjur og deildin segist standa með þeim.