19. feb. 2020

Hörður semur við Viðburðastofu Vestfjarða um útsendingar og markaðsmál

Handknattleiksdeild Harðar og Viðburðastofa Vestfjarða hafa gert samning um að Viðburðastofan sjái um útsendingar og markaðsmál deildarinnar.

Í gær handsöluðu Bragi Axelsson, fyrir hönd Harðar, og Ragnar Heiðar, eigandi Viðburðastofu Vestfjarða, samning um að Viðburðastofan sjái um útsendingar og markaðsmál fyrir handknattleiksdeildina.

Með samningnum vill Hörður bjóða upp á útsendingar frá öllum leikjum liðsins og vekja meiri áhuga á starfinu sem fer fram hjá deildinni. Viðburðastofan mun einnig sjá um alla hönnun og umsjón með samfélagsmiðlum handknattleiksdeildarinnar.

Forsvarsmenn deildarinnar segjast vænta mikils af samstarfinu og hlakka til að sjá hvert það leiðir. Á meðfylgjandi mynd handsala Bragi og Ragnar samninginn.