13. feb. 2020
Hörður leggur fram tillögur um ferðakostnað á ársþingi HSÍ
Hörður ætlar að leggja fram breytingatillögur við reglur HSÍ um ferðakostnað á næsta ársþingi og býður Þór - Handbolta velkomna á Ísafjörð 14. mars.
Hörður segist engum vilja illt og að félaginu sé ljúft að taka út fyrri skrif ef vinum þess að norðan hafi liðið illa vegna þeirra. Hörður mun leggja fram breytingatillögur við reglur HSÍ um ferðakostnað aðila á næsta ársþingi. Félagið segir að í raun ætti ekki að þurfa að breyta reglunum.
Hörður væntir þess að norðanmenn lagi sinn reikning og að sættir náist. Félagið bendir á að þetta séu íþróttir og þær eigi ekki að snúast um þetta. Hörður mun ekki fjalla meira um málið að óbreyttu.
Þór - Handbolti er velkominn á Ísafjörð 14. mars næstkomandi. Félagið segir aldrei að vita nema gestirnir fái köku og kaffi að vestfirskum sið að leik loknum.