31. mars 2012

Tveir leikir gegn Gróttu2 og lokaleikur fyrir páska á sunnudag

3. flokkur og 2. flokkur Harðar léku gegn Gróttu2 og á sunnudag kl. 14:00 mætir 2. flokkur Aftureldingu á Torfnesi í síðasta leik sínum á tímabilinu.

3. flokkur Harðar lék næstsíðasta heimaleik sinn í deildinni gegn Gróttu2. Liðið hafði tapað stórt fyrir Gróttu2 í fyrri leik liðanna á Seltjarnarnesi fyrr í mánuðinum. Í fyrri hálfleik var staðan 14-15, Gróttu í vil, og lokastaðan var 36-25. Það skrifast að mörgu leyti á þreytu leikmanna, sem léku 3-3 vörn í fyrsta sinn í vetur. Sú vörn heppnaðist fullkomlega í fyrri hálfleik. Drengirnir fá hrós fyrir mun betri spilamennsku en oft áður og mikil stemmning var í hópnum.

2. flokkur lék gegn sama liði, en uppistaðan í liði Gróttu2 voru leikmenn 3. flokks sem spila með tveimur flokkum. Staðan í hálfleik var jöfn, 16-16, og leikurinn endaði með eins marks tapi, 30-31. Harðverjar áttu flottan leik og mega vera stoltir af frammistöðunni.

Á sunnudag kl. 14:00 er síðasti leikur handknattleiksdeildar Harðar fyrir páska og jafnframt síðasti leikur 2. flokks á tímabilinu. Þá mæta Harðverjar liði Aftureldingar á Torfnesi, og eru stuðningsmenn hvattir til að fjölmenna.