16. nóv. 2019

Hörður mætir Kríu á Seltjarnarnesi klukkan 15:30

Hörður leikur gegn Kríu á Seltjarnarnesi í dag klukkan 15:30 eftir 38-32 tap gegn Haukum í gær.

Hörður mætir Kríu á Seltjarnarnesi í dag og hefst leikurinn klukkan 15:30. Strákarnir ætla sér að sækja sigur í leiknum.

Í gær tapaði liðið gegn sterku liði Hauka, 38-32. Daníel Adeleye var fremstur í flokki hjá Herði í þeim leik og skoraði 8 mörk.

Félagið hvetur alla til að mæta á leikinn í dag.