15. nóv. 2019
Hörður leikur við Hauka U2 og Kríu fyrir sunnan
Strákarnir í Herði halda suður í dag og mæta Haukum U2 í kvöld á Ásvöllum og Kríu á morgun í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.

Strákarnir í Herði halda í dag suður fyrir heiðar. Í kvöld mæta þeir Haukum U2 á Ásvöllum og á morgun leika þeir gegn Kríu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.
Að sögn félagsins hafa strákarnir æft vel síðustu tvær vikur og eru tilbúnir í leikina tvo.
Félagið hvetur alla sem hafa tök á að mæta og styðja liðið.