24. mars 2012
5. flokkur eldri hjá Herði: tap gegn Þór og sigur á Selfossi
Strákarnir í 5. flokki eldri töpuðu með einu marki fyrir Þór frá Akureyri í fyrsta leik í nýrri deild og unnu svo Selfoss með sama mun.
Strákarnir í 5. flokki eldri léku í nýrri deild í gær. Í fyrsta leiknum töpuðu þeir gegn Þór frá Akureyri með minnsta mun, einu marki. Þeir fengu rúmlega hálftíma hvíld fyrir næsta leik, sem var erfiður gegn flottu liði Selfyssinga. Harðarpúkarnir komu til baka og unnu þann leik með sama mun og sá fyrri tapaðist á. Baráttan og leikgleðin var til fyrirmyndar á löngum köflum.
Í dag eru tveir leikir framundan hjá strákunum gegn sterkum liðum HK og ÍBV.
Þá er minnt á leik 2. flokks Harðar kl. 14:00 í dag, laugardag. Þróttarar koma í heimsókn í Harpixhöllina á Torfnesi.