23. mars 2012
5. flokkur eldri í Hafnarfirði og tveir heimaleikir gegn Þrótti
5. flokkur eldri hjá Herði keppir í Hafnarfirði um helgina og 2. flokkur og 3. flokkur taka á móti Þrótti kl. 14:00 á laugardag og sunnudag.
5. flokkur eldri hjá Herði er í Hafnarfirði um helgina og keppir á næst síðasta deildarmóti vetrarins. Strákarnir spila tvo leiki í dag og tvo á morgun.
2. flokkur leikur gegn Þrótti kl. 14:00 á morgun, laugardag, í Torfnesi. Á sunnudag taka strákarnir í 3. flokki á móti Þrótti og hefst sá leikur einnig kl. 14:00.
Forráðamenn vonast til að sjá sem flesta mæta í stúkuna á þessa tvo heimaleiki.