2. nóv. 2019
Hörður tapaði fyrir ÍR U 37-31
Hörður tapaði fyrir ÍR U í gærkvöldi 37-31, og Aleksa skoraði 11 mörk fyrir liðið.

Hörður tapaði gegn ÍR U í gærkvöldi, 37-31. Aleksa var markahæstur með 11 mörk, Daníel og Óli skoruðu 5 mörk hvor og Þráinn og Tadeo fjögur mörk hvor.
Félagið þakkar þeim Harðverjum sem mættu á leikinn kærlega fyrir komuna. Því miður var leikurinn hvorki tekinn upp né sýndur hjá ÍR.
Næsti leikur liðsins er á Selfossi klukkan 16.30 í dag. Ef leikurinn verður sýndur verður það sett inn á síður félagsins.