24. okt. 2019
Hörður tekur á móti Selfossi U á föstudag
Hörður leikur fjórða leik sinn í 2. deild Íslandsmótsins á föstudag kl. 19:00 í íþróttahúsinu á Torfnesi gegn Selfossi U.

Hörður leikur sinn fjórða leik í 2. deild Íslandsmótsins á föstudag kl. 19:00 í íþróttahúsinu á Torfnesi. Hörður tekur þar á móti Selfossi U.
Ísfirsku strákarnir hafa æft vel síðustu vikur og verið að slípa spilið.
Fyrrverandi liðsmaður Selfoss og núverandi Harðarmaður telur að Hörður ætti að geta velgt Selfyssingum undir uggum, sérstaklega ef rútuferð þeirra verður erfið vegna veðurs.