18. mars 2012
Annasöm helgi í handboltanum hjá Herði
3. flokkur tapaði á Selfossi og gegn FH og mætir Gróttu á Seltjarnarnesi kl. 13:30 í síðasta útileik tímabilsins.
FH-ingar í 2. flokki sáu sér ekki fært að mæta til leiks. Samkvæmt upplýsingum handknattleiksdeildar Harðar mun leikurinn vinnast 10-0 og FH fá sekt í kjölfarið. Nánar verður greint frá því síðar.
3. flokkur lék hörkuleik á Selfossi á föstudag og tapaði 34-28, eða með 6 mörkum. Þjálfarinn, Ingvar, var mjög ánægður með drengina í þeim leik, sem stóðu sig með stakri prýði. Leikurinn gegn FH í gær var erfiður. Eftir góða byrjun fyrstu 15 mínúturnar fór allt í baklás og leikurinn tapaðist 42-14.
Í dag kl. 13:30 mæta drengirnir liði Gróttu á Seltjarnarnesi. Það er síðasti útileikur tímabilsins hjá þeim.