29. sep. 2019
Krakkar fá að spreyta sig í hálfleik á leiknum á morgun
Hörður býður krökkum sem æfa handbolta að koma í hálfleik á leiknum á morgun og reyna skot gegn markmönnum félagsins.
Á leiknum á morgun býður Hörður þeim krökkum sem eru að æfa að koma í hálfleik. Þau fá tækifæri til að spreyta sig gegn markmönnum félagsins og reyna við skot yfir allan völlinn.
Verðlaunin verða meðal annars ís og Harðarhandklæði. Leikurinn hefst klukkan 17.30.